Hoppa yfir valmynd
17. desember 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2010

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla.

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að framhaldsskólar, nemendur og foreldrar fái meira svigrúm til að undirbúa framhaldsskólavistina. Innritað verður frá 18. janúar til 26. febrúar 2010. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.

Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á heimasíðum framhaldsskóla og hjá forsvarsfólki starfsbrauta. Einnig má finna upplýsingar í vefritinu Nám að loknum grunnskóla sem aðgengilegt er á vefnum menntagátt.is

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um á eyðublöðum viðkomandi framhaldsskóla. Á umsóknareyðublaðið skal einnig tilgreindur annar skóli til vara.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum