Hoppa yfir valmynd
8. janúar 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing frá sænsk- íslenska samstarfssjóðnum

Árið 2010 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum.

Árið 2010 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum ferðastyrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.

Um styrki þessa skal sótt á sérstökum vefeyðublöðum sem er að finna á vefslóðinni www.nordiskafonder.se.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2010 og skal skila umsóknum rafrænt á vefnum. Styrkjunum verður úthlutað í lok mars.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum