Hoppa yfir valmynd
15. júlí 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku haustið 2010

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar. Stefnt er að því að úthluta um 35 m. kr. til þessa verkefnis haustið 2010.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur eru aðgengilegar undir flokknum sjóðir og eyðublöð á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis: menntamalaraduneyti.is. Umsóknir skal senda á [email protected].

Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2010.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum