Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skrifstofustjóra lögfræðisviðs

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra í ráðuneytinu.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
Menntamalaraduneytid

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra í ráðuneytinu. Skrifstofustjóri stýrir daglegri starfsemi á lögfræðisviði en hægt er að fela skrifstofustjóra umsjón með annarri skrifstofu eða sviði í ráðuneytinu.

Lögfræðisvið undirbýr ákvarðanir um lögfræðileg málefni og veitir lögfræðilega ráðgjöf innan ráðuneytisins. Lögfræðisvið hefur yfirumsjón með samningu lagafrumvarpa og reglugerða og undirbúningi stjórnsýsluúrskurða, auk þess sem það fer með samskipti við skrifstofu Alþingis. Lögfræðisvið hefur af hálfu ráðuneytisins umsjón með lögformlegri framkvæmd EES-samningsins og alþjóðlegra samninga sem ráðuneytið fer með aðild Íslands að. Sviðið fer með starfsmannamál stofnana sem heyra undir ráðuneytið eftir því sem við á, þ.m.t. skipun forstöðumanna.

Umsækjendur skulu hafa lokið embættisprófi eða meistaraprófi í lögfræði. Við mat á umsóknum verður litið til menntunar og starfsreynslu.

Í umsókn skal veita upplýsingar um menntun, starfsferil og reynslu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um kjör fer samkvæmt ákvörðunum Kjararáðs.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Magnúsdóttir, ráðuneytisstjóri. Umsóknir skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, eigi síðar en 10. ágúst 2010.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum