Hoppa yfir valmynd
12. október 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Laust er til umsóknar starf lögfræðings á lögfræðisviði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings á lögfræðisviði ráðuneytisins. Um er að ræða fullt starf.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf lögfræðings á lögfræðisviði ráðuneytisins. Um er að ræða fullt starf.

Á lögfræðisviði reynir á lögfræðilega ráðgjöf innan ráðuneytisins, undirbúning stjórnsýsluúrskurða og ákvarðana um lögfræðileg málefni. Þar er enn fremur höfð umsjón með samningu lagafrumvarpa og reglugerða. Af hálfu ráðuneytisins annast lögfræðisvið lögformlega framkvæmd EES-samningsins og alþjóðlegra samninga sem heyra undir ráðuneytið og Ísland er aðili að. Sviðið kemur einnig að stefnumótun ráðherra í einstökum málum.

Ráðuneytið leitar að einstaklingi sem er jákvæður og reiðubúinn að takast á við krefjandi verkefni, góður í mannlegum samskiptum, er nákvæmur, skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum.

Menntunarskilyrði eru embættispróf eða meistarapróf í lögfræði. Enn fremur er lögð áhersla á góða færni í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli. Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða sambærilegum störfum er kostur.

Miðað er við að ráða í stöðuna sem fyrst. Um kjör fer samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Gísli Þór Magnússon skrifstofustjóri á fjármálasviði. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík fyrir mánudaginn 25. október nk. 

Umsóknir um starfið gilda í sex mánuði. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum