Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til háskólanáms í Finnlandi

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2011-2012.

finnland
finnland

Íslenskum námsmönnum gefst kostur á að sækja um styrki sem stjórnvöld í  Finnlandi  bjóða fram til háskólanáms eða rannsóknarstarfa þar í landi háskólaárið 2011-2012. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver styrkur kemur í hlut Íslendinga. Styrkirnir eru ætlaðir til doktorsnáms, rannsókna og kennslu á háskólastigi. Umsóknir um styrki til doktorsnáms njóta forgangs.  Styrkir eru veittir til 3 - 9 mánaða og nemur styrkfjárhæðin 1200 evrum á mánuði.

Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á vef CIMO

Mennta- og menningarmálaráðuneytið framsendir umsóknir er uppfylla skilyrði sem nánar eru tilgreind í upplýsingum um styrkina og skulu umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, sendar ráðuneytinu.

Nánari upplýsingar veitir Sunna Viðarsdóttir.í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]
Umsóknarfrestur er til  1. febrúar 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum