Hoppa yfir valmynd
5. janúar 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2011

Innritun fatlaðra nemenda mun standa yfir frá 20. janúar til 28. febrúar 2011. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að framhaldsskólar, nemendur og foreldrar fái meira svigrúm til að undirbúa framhaldsskólavistina. Innritað verður frá 20. janúar til 28. febrúar 2011. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.
Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á heimasíðum framhaldsskóla og hjá forsvarsfólki starfsbrauta.
Umsækjendur eru beðnir að sækja um á eyðublöðum viðkomandi framhaldsskóla. Á umsóknareyðublaðið skal einnig tilgreindur annar skóli til vara.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum