Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úttektir á starfsemi leik-, grunn- og framhaldsskóla

Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir hér með eftir aðilum til að taka að sér verkefni á sviði úttekta á starfsemi leik-, grunn- og/eða framhaldsskóla á haustmisseri 2011

Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir hér með eftir aðilum til að taka að sér verkefni á sviði úttekta á starfsemi leik-, grunn- og/eða framhaldsskóla á haustmisseri 2011 og skal verkefnið innt af hendi á tímabilinu október til desember. Um er að ræða stofnanaúttektir á þremur skólum á hverju skólastigi. Úttektirnar eru gerðar í samræmi við ákvæði 20. gr. laga nr. 90/2008 um leikskóla, 38. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla og 42. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla.

Sækja má um allar úttektirnar á hverju skólastigi eða hluta þeirra. Gert er ráð fyrir að úttekt í hverjum skóla sé í höndum tveggja manna teymis. Mikilvægt er að a.m.k. einn einstaklingur í teyminu hafi nokkurra ára reynslu af kennslu á viðkomandi skólastigi en má þó ekki vera starfandi í skóla á skólaárinu 2011-2012. Saman skal teymið hafa menntun og reynslu á sviði úttekta og skólastarfs á viðkomandi skólastigi.

Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast ráðuneytinu fyrir 8. september 2011. Nánari upplýsingar gefa Margrét Harðardóttir og Védís Grönvold á mats- og geiningarsviði ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum