Norrænir starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur veitir á námsárinu 2011-2012 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnnám eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í starfsmenntaskólum eða framhaldsnáms starfsmenntakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Styrkirnir eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Fjárhæð styrks í Danmörku er 21.000 d.kr.
Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 2012.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.