Hoppa yfir valmynd
20. janúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2012

Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.

Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að framhaldsskólar, nemendur og foreldrar fái meira svigrúm til að undirbúa framhaldsskólavistina.

Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.

Umsækjendur sækja veflykil á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nánari leiðbeiningar um rafræna innritun er að finna í bréfi til forráðamanna nemenda sem afhent er í grunnskólum landsins og einnig má finna á slóðinni menntagatt.is/kynningarefni.

Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á vefsíðum framhaldsskóla, hjá forsvarsfólki starfsbrauta og á slóðinni menntagatt.is

Nánari upplýsingar um rafræna innritun á starfsbrautir í framhaldsskólum veitir Ragnheiður Bóasdóttir í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum