Hoppa yfir valmynd
8. mars 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar. Starfið er mjög fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir laust til umsóknar starf ritara á skrifstofu yfirstjórnar. Starfið er mjög fjölþætt og felst í almennum ritara- og skrifstofustörfum auk sérhæfðra verkefna. Um er að ræða fullt starf.
Leitað er að einstaklingi sem hefur til að bera frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Góð kunnátta og ritfærni í íslensku er skilyrði. Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli eru nauðsynlegir kostir ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningum starfsmanna Stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Jens Pétur Hjaltested, rekstrarstjóri.

  • Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík eða á netfangið: [email protected].
  • Umsóknarfrestur er til 26. mars 2012.
  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
  • Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum