Hoppa yfir valmynd
2. maí 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Sérfræðingur á skrifstofu menntamála

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í framhaldsskóladeild á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í framhaldsskóladeild á skrifstofu menntamála. Um er að ræða fullt starf.
Starfið felur einkum í sér samskipti og samningagerð við framhaldsskóla, mat og afgreiðsla á margvíslegum umsóknum og stjórnsýsluerindum, eftirlit með framkvæmd laga, leiðbeiningar og upplýsingagjöf, greining og úrvinnsla tölfræðiupplýsinga um skólastarf og samstarf við hagsmunaaðila.

Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun  á sviði menntamála og/eða stjórnsýslu og reynslu af störfum í menntastofnunum og stjórnsýslu einkum í tengslum við framhaldsskóla. Reynsla og góð kunnátta í stjórnsýslulegri meðferð mála og þekking á menntamálum er mikilvæg.  Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir þekkingu og hæfni í öflun, greiningu og miðlun upplýsinga, gæða- og verkefnastjórnun. Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum eru nauðsynlegir kostir. Gerð er krafa um ritfærni og góða kunnáttu í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun greiðast samkvæmt launakerfi Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Nánari upplýsingar veitir Ólafur Sigurðsson, deildarstjóri framhaldsskóladeildar.

  • Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
  • Umsóknarfrestur er til 27. maí 2012.
  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum