Hoppa yfir valmynd
22. maí 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Námsvist við alþjóðlegan menntaskóla

Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi.

Mennta- og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um skólavist við alþjóðlegan menntaskóla í Fjaler í Noregi. Skólinn er rekinn sameiginlega af Norðurlöndunum í tengslum við Rauða krossinn. Nám við skólann tekur tvö ár og lýkur því með viðurkenndu alþjóðlegu stúdentsprófi, International Baccalaureat Diploma (IB). Kennsla fer fram á ensku.

Íslensk stjórnvöld eiga aðild að rekstri skólans og býðst skólavist fyrir einn nemanda. Nemandi þarf sjálfur að greiða uppihaldskostnað sem nemur um það bil 50.000 norskum krónum á ári auk ferðakostnaðar. Nánari upplýsingar má finna á vef skólans.

Auglýst er eftir umsækjendum um skólavist fyrir skólaárið 2012-2013. Umsækjendur skulu hafa lokið sem svarar einu ári í framhaldsskóla, hafa gott vald á ensku og vera á aldrinum 16-19 ára.

Umsóknir berist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 21. maí næstkomandi.

Nánari upplýsingar veitir Erna Árnadóttir í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected]. Umsóknareyðublöð eru á vef ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum