Hoppa yfir valmynd
23. ágúst 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til atvinnuleikhópa 2013

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2013 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2013 til starfsemi atvinnuleikhópa er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu á fjárlögum.
Umsóknir geta miðast við einstök verkefni eða samfellt starf til lengri tíma, sbr. 16. gr. leiklistarlaga nr. 138/1998, og verður afstaða tekin til skiptingar fjárins eftir eðli umsóknanna og eftir því sem fé á fjárlögum 2013 í þessu skyni kann að segja til um.

  • Umsóknir skulu berast til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 25. september 2012, á eyðublöðum sem þar fást eða á vef ráðuneytisins.
  • Eyðublöð og úthlutunarreglur.
  • Umsóknarfrestur er til 25. september 2012 kl. 16:00.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum