Hoppa yfir valmynd
10. janúar 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir úr Sprotasjóði

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2013-14. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.

Í 4. gr. reglugerðar nr. 242/2009 um Sprotasjóð leik-, grunn- og framhaldsskóla segir:

Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn.

Áherslusvið sjóðsins verða að þessu sinni:


a)   Mat á námi með hliðsjón af nýjum aðalnámskrám

b)   Jafnrétti í skólastarfi

c)  Kynjafræði, kynheilbrigði og klám; – í samhengi við grunnþætti menntunar

Við mat á umsóknum verður skoðað hvernig verkefnin falla að hlutverki Sprotasjóðs ásamt því að markmið verkefnis séu skýrt fram sett, að verkefnisstjórn sé vel skilgreind,  að raunsæjar kostnaðar-, verk- og tímaáætlanir séu lagðar fram, og að framlag samstarfsaðila sé tryggt og vel skilgreint.

  • Umsóknir sem falla utan ofannefndra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun.
  • Fyrir skólaárið 2013 – 2014 verða til úthlutunar allt að 45 milljónir kr.
  • Vakin er sérstök athygli á að umsóknir um styrki skulu vera á rafrænu formi. Sækja þarf um aðgang að umsóknavef Sprotasjóðs.Tekið verður á móti umsóknum frá 11. janúar til 28. febrúar 2013.
  • Nánari upplýsingar um Sprotasjóð veitir Gunnhildur Helgadóttir hjá Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri í síma 460-8900 eða í tölvupósti á  [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum