Styrkur til háskólanáms í Kína skólaárið 2013-2014
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til náms á framhaldsstigi í háskólum í Kína námsárið 2013-2014.
Stjórnvöld Alþýðulýðveldisins Kína bjóða fram styrk handa Íslendingum til náms á framhaldsstigi í háskólum í Kína námsárið 2013-2014.
Nánari upplýsingar fást í mennta- og menningarmálaráðuneyti svo og á vef China Scholarship Council þar sem umsækjendur skulu skrá sig inn og fylla út rafræna umsókn. Vinsamlegast athugið að í reitinn "Agency No" á umsóknareyðublaðinu skal setja númerið 3521.
- Umsóknareyðublöð skal jafnframt prenta út og senda í tvíriti til mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
- Umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteina, greinargerð um áætlað nám í Kína og meðmæli.
- Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2013.