Styrkir til námsdvalar í Frakklandi
Franska sendiráðið á Íslandi veitir Íslendingum 5 styrki til að stunda nám í Frakklandi. Námsmenn á hvaða fræðisviði sem er geta sótt um styrkina. Forgang hafa nemendur sem stefna á meistara- eða doktorssnám, og þeir sem vilja klára tvær annir eða fleiri af námi sínu í Frakklandi.
- Bent er á að margar námsbrautir eru í boði á ensku.
- Nánari upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á vef franska sendiráðsins.
- Umsóknarfrestur er til 6. maí 2013.