Styrkir til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2013
Norræna ráðherranefndin og mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsa styrki til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum sumarið 2013.
Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem eru í fjárhagsvanda vegna atvinnuleysis yfir sumarmánuðina og hafa hvorki möguleika á námslánafyrirgreiðslu né rétt á atvinnuleysisbótum milli námsára. Hámarksstyrkur mun nema 200.000 kr.
Skilyrði umsóknar:
- Umsækjandi er íslenskur ríkisborgari búsettur Norðurlöndunum (utan Íslands).
- Umsækjandi er þegar í háskólanámi á Norðurlöndunum og hyggst halda áfram námi haustið 2013.
- Nám umsækjanda er lánshæft skv. úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna og umsækjandi fær ekki námslán fyrir meira en 60 ECTS einingum á námsári.
- Umsækjandi er ekki í lánshæfu sumarnámi.
- Umsækjandi er án atvinnu og á ekki rétt á atvinnuleysisbótum, hvorki á Íslandi né á hinum Norðurlöndunum.
- Umsækjendur sem ekki hafa hlotið þennan styrk áður njóta forgangs.
- Umsækjendur skulu vera í fullu námi og hafa lokið 60 ECTS einingum hið minnsta.
Ekki er tekið við umsóknum frá:
- Nemendum sem útskrifast árið 2013 og eru ekki að fara í áframhaldandi nám.
- Nemendum í fjarnámi, hvorki við íslenska né erlenda háskóla.
- Nemendum í skiptinámi.
- Nemendum í undirbúningsnámi fyrir háskólanám.
- Nemendum sem þiggja aðra námsstyrki s.s. SU.
Rannís hefur verið að falið að annast umsýslu styrkjanna. Umsóknareyðublöð, leiðbeiningar og nánari upplýsingar er að finna á vef Rannís.
Umsóknarfrestur er til 13. júní 2013.