Hoppa yfir valmynd
10. desember 2013 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til grunnnáms í listdansi

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að skólinn hafi hlotið viðurkenningu ráðuneytisins á starfseminni samkvæmt viðmiðum sem ráðuneytið hefur sett. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda og skólagjöld. 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum