Hoppa yfir valmynd
1. júní 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir - Styrkir til háskólanáms á Tævan

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2006-2007 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum.

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2006-2007 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á næsta námsári. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.500 d.kr., Noregi 25.000 n.kr. og í Svíþjóð um 20-25.000 s.kr.

Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 26. júní 2006. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu og á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.

Styrkir til háskólanáms á Tævan. Ráðuneyti menntamála á Tævan hefur tilkynnt að það bjóði fram styrk handa Íslendingi til BA-náms á Tævan. Styrkurinn er til allt að 5 ára þar af 1 ár til náms í kínversku. Styrktímabilið er frá 1. september 2006. Einnig eru boðnir fram 2 styrkir til náms í kínversku við háskóla á Tævan námsárið 2006-2007, þ.e. frá 1. september 2006 til 31. ágúst 2007. Styrkirnir nema 25.000 NT á mánuði (jafnvirði um 50.000 ísl. kr.).

Umsóknum skal skila til menntamálaráðuneytis á sérstökum umsóknareyðublöðum, ásamt tilskildum fylgigögnum, fyrir 16. júní 2006.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru fáanleg í menntamálaráðuneytinu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum