Hoppa yfir valmynd
4. júlí 2006 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norrænir starfsmenntunarstyrkir

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 17. júlí 2006.

Menntamálaráðuneyti Danmerkur og Noregs veita á námsárinu 2006-2007 nokkra styrki handa Íslendingum til náms við fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boði til náms í Svíþjóð á næsta námsári. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.500 d.kr., Noregi 25.000 n.kr. og í Svíþjóð um 20-25.000 s.kr.

Frestur til að skila inn umsóknum, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, er hér með framlengdur til 17. júlí nk. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum eyðublöðum sem þar fást. Eyðublöðin er einnig að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum