Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2005 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), EuroNews nr. 13, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni.

Hjálagt er nýjasta fréttabréf Evrópumiðstöðar fyrir þróun í sérkennslu (The European Agency for Development in Special Needs Education), EuroNews nr. 13, sem gefið hefur verið út á þjóðtungum allra þeirra landa sem aðild eiga að miðstöðinni. Nú eiga næstum öll nýju ESB-löndin aðild að Evrópumiðstöðinni ásamt þeim sem fyrir voru.

Í þessu tölublaði EuroNews er eingöngu efni sem tengist þeim þemum sem lögð er áhersla á í verkefni Evrópumiðstöðvarinnar um nám án aðgreiningar og skólastarfið. Í blaðinu er m.a. sagt frá þróunarverkefni á Íslandi í skóla án aðgreiningar.

Þess er vænst að ofangreint efni verði kynnt í stofnun yðar eða samtökum.

Einnig er bent á vefsíðu Evrópumiðstöðvarinnar en þar er aðgengilegt margs konar efni um sérkennslumál í Evrópu, alls konar samantektir og skýrslur ásamt upplýsingum um sérkennslumál í einstökum löndum: www.european-agency.org

Bryndís Sigurjónsdóttir aðstoðarskólameistari Borgarholtsskóla er sérstakur samstarfsaðili Evrópumiðstöðvarinnar fyrir Íslands hönd. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér frekar starfsemina er bent á netfang hennar [email protected]

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum