Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2007 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2007

Niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk 2007 grunnskólanemar meðal nemenda í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla

Menntamálaráðuneytið boðar til kynningarfundar, miðvikudaginn 14. nóvember nk., þar sem starfsfólk Rannsóknar og greiningar þau dr. Inga Dóra Sigfúsdóttir, deildarforseti Kennslufræða- og lýðheilsudeildar Háskólans í Reykjavík, Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík, Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík og Jón Sigfússon, framkvæmdastjóri Rannsóknar & greiningar, munu kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar "Ungt fólk 2007 grunnskólanemar" er viðkemur líðan, menntun, menningu, tómstundum, íþróttaiðkun og framtíðarsýn íslenskra barna. Rannsóknin var lögð fyrir nemendur í 5., 6. og 7. bekk í öllum grunnskólum landsins í lok febrúar 2007.

Kynningarfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 14. nóvember nk. í félagsheimili KFUM og KFUK við Holtaveg 28, Reykjavík og hefst hann kl. 13:15. Gert er ráð fyrir að fundinum ljúki eigi síðar en kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Menntamálaráðuneytið hefur staðið fyrir reglubundnum rannsóknum á högum barna og ungmenna síðan 1992 undir heitinu Ungt fólk. Rannsóknir og greining hefur verið samstarfsaðili menntamálaráðuneytis frá árinu 1999 við þessar rannsóknir. Fundarmenn fá tækifæri til að bera fram spurningar um niðurstöður úr rannsókninni að kynningu lokinni.

Fundurinn er öllum opinn. Vinsamlega tilkynnið þátttöku á netfangið: [email protected].



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum