Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilkynnt um dagsetningar samræmdra prófa í 4. og 7. bekk haustið 2008

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2008, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Til skólastjóra grunnskóla og skólanefnda

Samræmd próf í íslensku og stærðfræði verða lögð fyrir nemendur í 4. og 7. bekk haustið 2008, sbr. 46. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla.

Prófdagar verða sem hér segir:

Íslenska í 4. og 7. bekk fimmtudagur 16. október 2008 kl. 9.30 – 12.00
Stærðfræði í 4. og 7. bekk föstudagur 17. október 2008 kl. 9.30 – 12.00

Ákvörðun þessi er tekin í samráði við Námsmatsstofnun sem sér um framkvæmd prófanna. Stofnunin sendir leiðbeiningar um framkvæmd prófanna til skóla fyrir skólabyrjun í haust.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum