Hoppa yfir valmynd
10. september 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Tilkynnt um breytingar við framkvæmd samræmdra könnunarprófa

Menntamálaráðuneyti vekur athygli á eftirfarandi breytingum í nýjum lögum um grunnskóla. Samkvæmt 39. gr. laga um grunnskóla er skólastjórum nú heimilt ef gildar ástæður mæla með því og ef samþykki foreldra liggur fyrir að veita nemendum undanþágu frá því að þreyta samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk.


Texti:
Í júní 2008 samþykkti Alþingi ný lög um grunnskóla, lög nr. 91/2008, sem tóku gildi 1. júlí sl. og féllu þá úr gildi eldri lög nr. 66/1995 um grunnskóla. Menntamálaráðuneyti vill vekja athygli á eftirfarandi breytingum í nýjum lögum.

Samkvæmt 39. gr. laga um grunnskóla er skólastjórum nú heimilt ef gildar ástæður mæla með því og ef samþykki foreldra liggur fyrir að veita nemendum undanþágu frá því að þreyta samræmd könnunarpróf í 4., 7. og 10. bekk. Skólastjórar skulu tilkynna Námsmatsstofnun um þá nemendur sem fá undanþágu frá því að þreyta könnunarprófin og tilgreina ástæður undanþágu.
Um er að ræða undanþágur fyrir:
Nemendur með annað móðurmál en íslensku sem geta fengið undanþágu frá því að þreyta samræmt könnunarpróf í íslensku í 4., 7. og 10. bekk. Jafnframt er heimilt að veita þessum nemendum undanþágu frá því að þreyta samræmt könnunarpróf í stærðfræði hafi þeir dvalið skemur á landinu en eitt ár.
Nemendur í sérskólum, sérdeildum og aðra þá nemendur á skyldunámsaldri sem taldir eru víkja svo frá almennum þroska að þeim henti ekki samræmd könnunarpróf.
Nemendur sem orðið hafa fyrir líkamlegu eða andlegu áfalli sem gerir þeim ókleift að þreyta samræmt könnunarpróf.

Í 39. gr. laga um grunnskóla er jafnframt kveðið á um að nemendur í fyrri hluta 10. bekkjar skuli þreyta samræmd könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði. Fyrstu könnunarprófin í 10. bekk verða haldin vorið 2009 eins og þegar hefur verið tilkynnt. Hér er vakin athygli á að þar sem 10. bekkjar prófin eru könnunarpróf en ekki lokapróf verða ekki ráðnir trúnaðarmenn vegna prófanna. Framkvæmdin verður sú sama og hefur verið við  könnunarprófin í 4. og 7. bekk.

Ný reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa í 4., 7. og 10. bekk verður gefin út á haustmánuðum.

Fyrir hönd ráðherra


Stefán Baldursson



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum