Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla 2009

Til skólastjóra grunnskóla í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Garðabæ

Ákveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að fyrir liggi tímanlega hve margir umsækjendur eru og hvert þeir sækja svo auðveldara verði að veita þeim skólavist við hæfi. Þá fá skólarnir meira svigrúm til að vinna úr umsóknum og undirbúa komu viðkomandi nemenda. Umsóknir um skólavist á starfsbrautum skulu hafa borist þeim fyrir 15. maí næstkomandi.

Það eru vinsamlega tilmæli menntamálaráðuneytis að þér komið upplýsingum þessum á framfæri við nemendur þá sem málið varðar og forráðamenn þeirra.

Starfsbrautir á höfuðborgarsvæðinu eru starfræktar við Borgarholtsskóla, Fjölbrautaskólann við Ármúla, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Fjölbrautaskólann í Garðabæ, Flensborgarskólann í Hafnarfirði, Menntaskólann í Kópavogi og Tækniskólann. Upplýsingar um starfsbrautir er að finna á heimasíðum framhaldsskólanna, hjá náms- og starfsráðgjöfum og forsvarsmönnum starfsbrauta. Einnig má finna upplýsingar í vefritinu Nám að loknum grunnskóla.

Umsækjendur og forráðamenn þeirra skulu snúa sér beint til viðkomandi framhaldsskóla og sækja um á eyðublöðum sem skólinn lætur þeim í té. Á umsóknareyðublaði skal tilgreindur varaskóli þar sem ekki er sjálfgefið að skólinn sem sótt er um sem fyrsta kost geti veitt nemandanum skólavist.

Formleg svör um skólavist berast í júnímánuði.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum