Hoppa yfir valmynd
20. apríl 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðalnámskrá grunnskóla - ný drög að almennum hluta

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur birt endurskoðuð drög að almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla á vefsvæði sínu, http://www.menntamalaraduneyti.is/utgefid-efni/namskrar/drog-ad-nyjum-namskram/grunnskolar--namskrardrog/

Reykjavík 13. apríl 2011

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur birt endurskoðuð drög að almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla á vefsvæði sínu.

Fyrstu drög að almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla voru sett á vef ráðuneytisins sl. sumar og óskað var eftir athugasemdum. Fjölmargar gagnlegar ábendingar og athugasemdir bárust. Einnig kynntu fulltrúar ráðuneytisins drögin á fundum með hagsmunaaðilum þar sem leitað var eftir sjónarmiðum þeirra.

Starfshópur á vegum ráðuneytisins sem í sátu, auk fulltrúa frá ráðuneytinu, fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Skólastjórafélagi Íslands og Félagi grunnskólakennara hefur farið yfir allar ábendingar sem bárust og skilað ráðuneytinu endurskoðuðum drögum sem ráðuneytið hefur tekið afstöðu til.

Þessi drög eru nokkuð breytt frá þeim fyrri. Hér er m.a. að finna drög að viðmiðunarstundaskrá og viðmiðunum fyrir námsmat við lok grunnskóla sem ekki voru í fyrri drögum.

Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð hagsmunaaðila við þessum endurskoðuðum drögum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu.

Unnt er að senda inn athugasemdir og umsagnir á netfangið [email protected]. Frestur til að skila inn athugasemdum og umsögnum er til 1. maí 2011. Stefnt er að því að gefa út nýjan almennan hluta aðalnámskrár grunnskóla haustið 2011.

Vinna við greinahluta aðalnámskrár grunnskóla er að hefjast og stefnt er að útgáfu þeirra í áföngum árið 2012.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum