Hoppa yfir valmynd
12. febrúar 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kynntu þér styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir menningu og listir

Norræna styrkjaáætlunin stendur fyrir kynningarfundi Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu 16. febrúar.
Kulturkontakt Nord
~4369892
  • Ert þú listamaður eða vinnur þú á annan hátt að menningu og listum?
  • Viltu fá alþjóðlegan vinkil á verkefnin þín?
  • Viltu mynda ný tengsl?
  • Ertu með áhugavert verkefni?

Ef þú svarar þessum spurningum játandi mun menningaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar líklega vekja áhuga þinn. Þá stendur Norræna styrkjaáætlunin fyrir kynningarfundi Norrænu menningargáttarinnar í Norræna húsinu.

Bergljót Jónsdóttir forstjóri segir frá þeim möguleikum sem Norræna styrkjaáætlunin býður upp á og gefur góð ráð til umsækjenda. Eftir stutta kynningu verður gerð grein fyrir verkefni sem Menningargáttin hefur styrkt. Síðan fara fram pallborðsumræður með; Ágústi Guðmundsyni, Bergljótu Jónsdóttur, Hávari Sigurjónssyni, Ragnheiði Tryggvadóttur, Signýju Ormarsdóttur og Þuríði Helgu Kristjánsdóttur.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum