Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til framhaldsskólanema til námsdvalar í Japan 2009-2010

Stjórnvöld í Japan bjóða upp á styrk til námsdvalar í Japan fyrir evrópsk ungmenni á framhaldsskólastigi. Markmið styrkveitinganna er að ýta undir nemendaskipti milli svæðanna og renna stoðum undir aukin skilning milli Japans og Evrópu.
Japanski fáninn

Stjórnvöld í Japan bjóða upp á styrk til námsdvalar í Japan fyrir evrópsk ungmenni á framhaldsskólastigi. Markmið styrkveitinganna er að ýta undir nemendaskipti milli svæðanna og renna stoðum undir aukin skilning milli Japans og Evrópu. Annars vegar er boðið upp á styttri 5 vikna dvöl og hins vegar lengri 5 mánaða dvöl fyrir styrkþega. Á meðan að á dvölinni stendur, munu styrkþegar sækja japanska skóla, dveljast á venjulegum japönskum heimilum og taka þátt í ýmsum viðburðum í Japan.

Á árinu 2009 verða als veittir 2 styrkir til íslenskra nemenda, einn styrkur til styttri dvalar og annar til lengri dvalar.

Upplýsingar um námsdvöl

Styttri námsdvöl (5 vikur)
Námsdvöl hefst 21. júní 2009 og tekur endi 26. júlí 2009.
Styrkþegar munu sækja tíma í japönskum framhaldsskóla, fara í ferðir til ýmissa svæða í Japan og dveljast á japönsku heimili.

Lengri námsdvöl (5 mánuðir)
Námsdvöl hefst 16. ágúst 2009 og tekur endi 6. janúar 2010. Styrkþegar munu sækja tíma í japönskum framhaldsskóla, dveljast á japönsku heimili og taka þátt í ýmsum viðburðum.

Umsókn:

1. Umsækjandi skyldi:

(a) vera 15-18 ára og vera nemandi á 1. eða 2. ári í framhaldsskóla við upphaf námsdvalar.

(b) vera íslenskur ríkisborgari.

(c) vera andlega og líkamlega heilsuhraustur.

(d) hafa grunnþekkingu á japanskri tungu, ellegar einbeittan áhuga á að læra tungumálið og kynnast japanskri menningu.

(e) geta tjáð sig skilmerkilega á ensku og lagað sig að daglegu lífi í Japan.

(f) ekki hafa nein föst áform um langtíma dvöl í Japan.

(g) ekki vera handhafi japansks vegabréfs.

2. Umsóknina má nálgast á vef menntamálaráðuneytis

Skila þarf inn vélritaðri umsókn til Sendiráðs Japans eigi síðar en 20. mars 2009. Sendiráðið mun meta innsendar umsóknir og standa að viðtölum við umsækjendur sem koma til greina þann 25. mars 2009.

3. Styrkurinn hljóðar upp á greiðslu ferðakostnaðar milli Íslands og Japans, útgjalda vegna skipulagðra ferða á meðan á dvölinni stendur og alls tilfallandi kostnaðar vegna skólagöngu í japönskum framhaldsskóla. Styrkþegar skyldu sjálfir standa straum af öðrum kostnaði.

 

Sendiráð Japans á Íslandi

  • Laugavegi 182, 105 Reykjavík
  • Sími: 510 8600 / Fax : 510 8605
  • Tölvupóstur: [email protected] 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum