Hoppa yfir valmynd
5. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

SAFT ungmennaráð

SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.
SAFT
saftlogo

SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi, hefur hafið undirbúning að stofnun ungmennaráðs.

Ungmennaráðið samanstendur af krökkum á aldrinum 12-18 ára sem koma alls staðar að af landinu. Ráðið mun aðstoða við uppfærslu á heimasíðu SAFT, Facebook og Myspace síðum verkefnisins.

Ráðið mun einnig vinna hugmyndir um það hvernig eigi að kenna ánægjulega og örugga netnotkun í skólum landsins, koma að hönnun kennsluefnis, vera ráðgefandi um hönnun og framkvæmd herferða, sinna jafningjafræðslu og halda erindi á foreldrafundum.

Allir sem eru í ráðinu hafa áhuga á netinu og öllum þeim möguleikum sem það hefur upp á að bjóða og geta unnið með öðrum í því að gera netið að öruggari stað fyrir okkur öll. Ungmennaráðið hittist einu sinni á ári þar sem skoðuð er nýjasta tækni og málin rædd. Ráðið mun einnig halda fjarfundi fjórum sinnum á ári, þá með aðstoð tölvutækninnar. Ráðgert er að fulltrúar ráðsins sitji árlegan Evrópufund ungmennaráða.

Í tilefni af stofnun ungmennaráðs efnir SAFT til samkeppni um logo fyrir ungmennaráð. Hugmyndum má skila inn rafrænt á [email protected] fyrir 22. maí.

Úrslit verða tilkynnt 29. maí. Ungt fólk getur gengið til liðs við ungmennaráðið með því að fylla út eyðublað á www.saft.is. Sérstakir sendiherrar verða svo tilnefndir til þess að fara fyrir starfsemi ungmennaráðs á sínu heimasvæði.

Nánari upplýsingar má finna á www.saft.is



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum