Hoppa yfir valmynd
7. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Evrópumerkið/European Label árið 2009 til umsóknar

Umsóknarfrestur um Evrópumerkið í ár er til 30. júní n.k.

Evrópumerkið er viðurkenning fyrir nýbreytniverkefni í tungumálanámi og tungumálakennslu á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og menntamálaráðuneytisins. Evrópumerkið er veitt annað hvert ár og er ráðgert að viðurkenningin verði veitt á Evrópskum tungumáladegi 26. september nk.

Umsóknarfrestur um Evrópumerkið í ár er til 30. júní nk.

Umsóknum er hægt að skila rafrænt til Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins á slóðinni: http://www.ask.hi.is/page/evropumerki2009

Eftirfarandi evrópsk forgangssvið verða árið 2009:

  • Tungumál og fjölmenning
  • Tungumál og viðskipti

Forgangssviðin eru ekki bindandi.



Nánari upplýsingar gefur Ragnhildur Zoega á Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, sími 525 5813.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum