Hoppa yfir valmynd
4. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Aðalnámskrá framhaldsskóla: námsbrautir fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum - Kynning á drögum að nýrri námskrá

Drögin sem nú eru til kynningar fela í sér nokkrar breytingar á gildandi aðalnámskrá fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum sem tók gildi árið 2003.

Greinargerð

Drög að aðalnámskrá framhaldsskóla fyrir leikskólaliða, skólaliða og stuðningsfulltrúa í grunnskólum sem nú eru til kynningar fela í sér nokkrar breytingar á gildandi aðalnámskrá fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum sem tók gildi árið 2003. Námskráin var endurskoðuð að frumkvæði starfsgreinaráðs uppeldis- og tómstundagreina í samstarfi við framhaldsskóla, einkum Borgarholtsskóla, með það að markmiði að koma betur til móts við námsþarfir nemenda og hæfnikröfur atvinnulífs.

Um er að ræða endurskoðun á áherslum og uppröðun námsþátta í nokkrum áföngum sérnáms byggða á reynslu undangenginna ára. Enn fremur var umfang almennra greina á námsbrautum leikskólaliða og stuðningsfulltrúa í grunnskólum fært til samræmis við aðrar starfsnámsbrautir af svipaðri lengd og styttist þar með meðalnámstími á þessum brautum úr fjórum önnum í þrjár.

Þá voru brúarafbrigði námsbrautanna endurskilgreind og felld inn í námskrána.

Námskrárdrögin verða til kynningar á vefsvæði þessu til 15. júní 2009.

Á þeim tíma gefst hagsmunaaðilum og almenningi kostur á að senda athugasemdir og ábendingar um námskrána í heild eða einstaka þætti hennar til menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

Einnig er hægt að senda athugasemdir á netfangið [email protected].

Að loknu umsagnarferlinu mun ráðuneytið gera þær lagfæringar á námskránni sem nauðsynlegar teljast, staðfesta hana og senda auglýsingu um gildistöku hennar til birtingar í Stjórnartíðindum. Námskráin verður að því loknu birt á námskrárvef ráðuneytisins.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum