Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2010 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til aukinnar þjónustu við börn. Umsóknarfrestur til 25. nóvember.

Umsóknarfrestur sveitarfélaga um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með athyglisbrest rennur út 25. nóvember.

Börn að leik
Börn að leik

Umsóknarfrestur sveitarfélaga um styrki til verkefna sem ætlað er að efla stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með athyglisbrest rennur út 25. nóvember. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða verkefna sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.

Styrkir verða veittir á grundvelli samstarfssamnings félags- og tryggingamálaráðuneytis, mennta- og menningarmála­ráðu­­neytis, heilbrigðisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveitarfélög geta sótt um styrki vegna verkefna á eigin vegum eða sem unnin eru í samstarfi við einstaklinga eða félagasamtök.

Við mat á umsóknum verður lögð megináhersla á að viðkomandi verkefni feli í sér, með beinum hætti, þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.

Sveitarfélög sem hljóta styrk skulu leggja fram vinnu við skipulagningu og framkvæmd verkefnis. Í því felst almennur stjórnunarkostnaður, svo sem kostnaður við skrifstofuaðstöðu, kostnaður við ráðningu og verkstjórn og kostnaður við skipulagningu og samþættingu við starfsemi í grunnskólum, leikskólum eða öðrum stofnunum á vegum sveitarfélagsins. Enn fremur er innifalinn kostnaður við eftirlit og eftirfylgni verkefnis, uppgjör og skýrslugerð auk kostnaðar vegna húsnæðis þar sem það á við.

Gert er ráð fyrir að þeim verkefnum sem hljóta styrk að þessu sinni ljúki fyrir fyrir 31. desember 2011.

Nánari upplýsingar um styrkhæf verkefni ásamt umsóknareyðublaði

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum