Hoppa yfir valmynd
29. mars 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Slá menntakerfið, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífinu? Opinn fundur Vísinda- og tækniráðs um vísinda- og nýsköpunarkerfið

Efnt er til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og nýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni; „Með gæði og ávinning að leiðarljósi".

Þriðji fundurinn þessari fundaröð verður haldinn miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17

Vísinda- og tækniráð efnir til opinnar og gagnrýninnar umræðu um vísinda- og nýsköpunarkerfið á fjórum opnum fundum í febrúar-apríl 2011 undir yfirskriftinni; „Með gæði og ávinning að leiðarljósi".
Þriðji fundurinn þessari fundaröð verður haldinn miðvikudaginn 30. mars kl. 15-17 í Náttúrufræðstofnun Íslands, Urriðaholti, Garðabæ.

Slá menntakerfið, háskólar og rannsóknastofnanir taktinn með atvinnulífinu?

Inngangserindi:

  • Eiríkur Hilmarsson, framkvæmdastjóri Vísindagarða Háskóla Íslands ehf.
  • Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika
  • Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa
  • Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur, Samtökum iðnaðarins
  • Fundarstjóri: Þorsteinn Ingi Sigfússon, formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs

Að loknum málfundinni verða fyrirlestrar aðgengilegrir á vef Vísinda- og tækniráðs.

Næsti málfundur:
Þekkingaryfirfærsla - stíflur eða opnar gáttir? -verður haldinn miðvikudaginn 27. apríl kl. 15-17.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum