Hoppa yfir valmynd
1. apríl 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands

Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Í skólanum eru í boði
margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.

Fjölbrautaskóli Vesturlands
Fjolbautaskoli-Vesturlands_jpg

Laust er til umsóknar embætti skólameistara við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Í skólanum eru í boði
margar námsleiðir í bóknámi og starfsnámi.

Starfssvið

Skólameistari veitir framhaldsskólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að
skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Hann ber
ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi
innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur

Samkvæmt 14. gr. laga um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla, nr. 87/2008, skal skólameistari hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í
stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og
hæfileika til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu
námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Skólameistari gegnir
mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli nýrra laga. Sérstaklega er litið til þess að væntanlegur
skólameistari beiti sér fyrir samstarfi framhaldsskóla á Vesturlandi.

Ráðning og kjör

Mennta- og menningarmálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi
skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins,
nr. 70/1996, með síðari breytingum. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 1. ágúst 2011 en æskilegt
er að viðkomandi geti komið að undirbúningi skólastarfs fyrir skólaárið 2011 - 2012.
Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum.

Umsóknir

Umsóknir með upplýsingum um starfsheiti ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa
borist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, mánudaginn 25.apríl
2011. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Pétur Hjaltested rekstrarstjóri í mennta- og
menningarmálaráðuneyti.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 1. apríl 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum