Hoppa yfir valmynd
23. maí 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Drög að reglugerð um framhaldsfræðslu

Mennta og menningarmálaráðuneytið hefur birt drög að reglugerð um framhaldsfræðslu til umsagnar.

mennta- og menningarmálaráðuneytið
mennta- og menningarmálaráðuneytið

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur birt drög að reglugerð um framhaldsfræðslu á vefsvæði sínu.
Drög að reglugerð um framhaldsfræðslu hafa verið undirbúin á grundvelli ákvæða laga nr. 27/2010 um framhaldsfræðslu. Fjórir vinnuhópar skipaðir starfsfólki mennta- og menningarmálaráðuneytisins og sérfræðingum utan ráðuneytis unnu að undirbúningi reglugerðarinnar síðari hluta árs 2010 og voru meginniðurstöður þeirra kynntar og ræddar á ráðstefnu ráðuneytisins um innleiðingu laga um framhaldsfræðslu 19. nóvember 2010. Starfsmenn ráðuneytisins hafa síðan dregið efni starfshópanna sama í heildstæð reglugerðardrög sem voru kynnt og rædd í vinnuhópum á samráðsfundi ráðuneytisins og fræðsluaðila í framhaldsfræðslu 24. mars 2011.

Ráðuneytið telur mikilvægt að fá viðbrögð hagsmunaaðila við þessum drögum áður en gengið verður frá þeim til útgáfu.

 

  • Frestur til að skila inn athugasemdum og umsögnum er til 1. júlí 2011. Stefnt er að því að gefa reglugerð um framhaldsfræðslu út haustið 2011.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum