Hoppa yfir valmynd
10. júní 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til starfsmenntanáms í Noregi 2011-2012

Norsk stjórnvöld veita árlega styrki til Íslendinga til starfsmenntanáms í Noregi.

Norsk stjórnvöld veita árlega styrki til Íslendinga til starfsmenntanáms í Noregi. Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hliðstæðs náms, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla á Íslandi.

  • Umsókn um styrk er send til mennta- og menningarmálaráðuneytis á sérstöku eyðublaði.
  • Nánari upplýsingar veitir Ólafur Grétar Kristjánsson í síma 545 9500 eða í tölvupósti á [email protected].
  • Umsóknarfrestur er til  28. júní 2011.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum