Hoppa yfir valmynd
20. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Umsóknir um styrki á safnliðum ráðuneyta samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2014

Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur.

Umsókn um styrki - Alþingi
Umsókn um styrki - Alþingi

Á árinu 2012 voru gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hætti úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til félaga, samtaka og einstaklinga eins og verið hefur. Alþingi mun áfram ákvarða umfang styrkja til einstakra málaflokka en úthlutun þeirra hefur verið flutt til ráðuneyta, lögbundinna sjóða, menningarráða landshluta eða annarra sem sjá um og bera ábyrgð á viðkomandi málaflokkum.

Ráðuneytin munu einungis úthluta styrkjum til verkefna sem falla undir málefnasvið þeirra að svo miklu leyti sem þau falla ekki undir lögbundna sjóði eða samninga, svo sem menningarsamninga eða vaxtarsamninga. Því er mikilvægt að umsækjendur kynni sér vel hvaða ráðuneyti ber ábyrgð á þeim málaflokki sem verkefni umsækjanda um styrk fellur undir.  Verkefni eru einungis styrkhæf í einu ráðuneyti og áskilja ráðuneyti sér rétt til að færa umsóknir á milli ráðuneyta falli verkefni betur að málaflokki í öðru ráðuneyti.

Minnt er á að hafi umsækjandi áður fengið styrk til verkefnis þarf að liggja fyrir greinargerð um framkvæmd fyrra verkefnis og ráðstöfun styrkfjárins til að ný umsókn komi til greina eða eins og kveðið er á um í samkomulagi vegna fyrri styrkveitinga.

Upplýsingar um mat á umsóknum er að finna í 4. gr. úthlutunarreglna og í auglýsingu.


  • Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnarráðsins

    • Aðgangur er veittur á kennitölu einstaklinga.
    • Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneyti undir flipanum Umsóknir.
Úthlutað er einu sinni á ári og eigi síðar en 31. janúar ár hvert.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti:

  • Styrkir á sviði lista og menningar - Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa á sviði lista og menningar og hafa ekki aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
  • Styrkir á sviði menningararfs - Veitt eru framlög til félagasamtaka og annarra aðila sem starfa að varðveislu menningarminja og hafa ekki aðgang að menningarsamningum eða sjóðum.
  • Styrkir til uppbyggingar landsmótsstaða - Veitt eru framlög til að styðja við uppbyggingu á landsmótssvæðum í samstarfi við sveitarfélög og fleiri aðila.


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum