Hoppa yfir valmynd
11. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ný stjórn þróunarsjóðs námsgagna

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýja stjórn þróunarsjóðs námsgagna til næstu fjögurra ára.

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýja stjórn þróunarsjóðs námsgagna til næstu fjögurra ára.
Hlutverk hans er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 71/2007 um námsgögn og þar er m.a. kveðið á um að stjórn hans ákveði skiptingu á fjármunum sjóðsins og beri ábyrgð á umsýslu hans. Sjóðsstjórn er heimilt að fá aðstoð sérfræðinga við mat á umsóknum.  Ennfremur segir að mennta- og menningarmálaráðherra setji þróunarsjóði námsgagna reglugerð, þar sem m.a. sé kveðið á um skipulag hans og reglur um úthlutun. Stjórnin skal eiga samráð við kennara og skóla og fylgjast með þróun og nýsköpun í námsgagnagerð fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Ákvarðanir sjóðstjórnar um úthlutanir eru endanlegar og verður ekki skotið til æðra stjórnvalds. Félag íslenskra framhaldsskóla,
Kennarasamband Íslands og samband íslenskra sveitarfélaga tilnefna fjóra af fimm stjórnarmönnum. Mennta- og menningarmálaráðherra skipar formann án tilnefningar.

Stjórnin er þannig skipuð:

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, formaður; Laufey Petrea Magnúsdóttir, varaformaður, tilnefnd af Félagi íslenskra framhaldsskóla; Anna María Gunnarsdóttir og Haraldur Freyr Gíslason tilnefnd af Kennarasambandi Íslands og  Kristín Hreinsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Varamenn eru Björg Pétursdóttir, Baldur Gíslason, Guðbjörg Ragnarsdóttir, Svanhildur Ólafsdóttir og Gylfi Jón Gylfason.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum