Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ráðherra heimsækir skóla á degi íslenskrar tungu

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra gerði víðreist á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. Dagurinn hófst með heimsókn í Fellaskóla í Breiðholti.

Með nemendum í FB
Med-nemendum-i-Fjolbrautarskolanum-i-Breidholti

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra gerði víðreist á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember sl. Dagurinn hófst með heimsókn í Fellaskóla í Breiðholti. Þar var samkoma í tilefni dagsins með þátttöku nemenda ásamt leikskólabörnum og Kór eldri borgara í Gerðubergi. Að því loknu heimsótti ráðherrann leikskólann Holt, einnig í Breiðholti og kynnti sér m.a. starf með börnum af erlendum uppruna, sem hafa íslensku sem annað mál.
Morgninum lauk svo á heimsókn í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og ráðherra kynnti sér sérstaklega innflytjendabraut, sem starfrækt er við skólann og snæddi hádegisverð með nemendum af erlendum uppruna. Skólaheimsóknum lauk svo í leikskólann Sólborg þar sem heyrnarskert börn eru ásamt börnum með fulla heyrn og öll læra þau samskipti með táknmáli. Radherra aðstoðar stúlku í HoltiRáðherra með starfsfólki í FBSamkoma í FellaskólaMeð nemendum í FBMeð nemendum í FBMeð börnum í SólborgÍslenskukennsla í FellaskólaMeð nemendum í FBSöngstund á Sólborg
Í Fellaskóla

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum