Hoppa yfir valmynd
1. október 2011 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Bíódagar – í hita og þunga dagsins

Íslensk kvikmyndagerð gegnir stóru hlutverki í menningarlífi okkar Íslendinga – en hún er um leið mikilvæg atvinnugrein sem skapar ótal störf og mikil verðmæti. En rétt eins og aðrar atvinnugreinar varð kvikmyndaiðnaðurinn fyrir þungu höggi í kjölfar efnahagshrunsins og eftirskjálfta þess.

 Í skugga hrunsins

Í efnahagshruninu brugðust allar tekjspár ríkissjóðs og það var ljóst frá fyrsta degi að grípa þyrfti til harkalegra aðhaldsaðgerða. Kvikmyndasjóður fór  ekki varhluta af þeim og hafa framlög til hans lækkað um 23% frá því sem mest var árið 2009. En öll él birtir upp um síðir og nú þremur árum síðar erum við loks farin að sjá til sólar í ríkisfjármálum – og þá eru komnar forsendur fyrir uppbyggingu.

Stóra planið

Framlög ríkissjóðs til kvikmyndagerðar koma ekki aðeins í gegnum Kvikmyndasjóð heldur koma þau einnig fram sem endurgreiðslur á 20% af framleiðslukostnaði. Í ár stefnir í að iðnaðarráðuneytið endurgreiði kvikmyndagerðarmönnum tæpar 687 milljónir króna, þar af 471 milljón vegna íslenskra mynda og 216 milljónir vegna erlendra mynda. Það þýðir að ríksframlög til kvikmyndaframleiðslu hafa aldrei verið hærri. Samtals verða því ríkisframlög til kvikmyndagerðar um 1.139 m.kr. á þessu ári, þar af 923 m.kr. til innlendrar framleiðslu. 

Bíódagar – í hita og þunga dagsinsÞessar tölur sýna að mikil umsvif eru í kvikmyndageiranum á Íslandi og að árið 2011 er það stærsta hvað varðar framlög úr ríkissjóði til kvikmyndagerðar. Og sannarlega viljum við ýta undir og efla kvikmyndaiðnaðinn. Í fyrra voru ellefu kvikmyndir í fullri lengd frumsýndar og þær eru orðnar átta á þessu ári auk þess sem mikið er framleitt af efni fyrir sjónvarp. Það er ástæða til þess að fagna því að þrátt fyrir allt skuli vera mikil gróska í kvikmyndageiranum á Íslandi. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir því að auka þarf fjárframlög til kvikmyndasjóðs til þess að tryggja grunnfjármögnun á kvikmyndum og að því er stefnt.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur kynnt fyrir kvikmyndagerðarfólk i drög að samkomulagi um stefnumörkun til fimm ára um aðgerðir til að efla íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu. Gangi þetta samkomulag eftir munu framlög til Kvikmyndasjóðs hækka í skrefum úr 452 m.kr. í ár í 700 m.kr. árið 2016. Auk fjárveitinga til Kvikmyndasjóðs fjallar samkomulagið einnig um ýmis þörf úrbótamál á sviði kvikmyndamenningar.

Nýtt líf

Kvikmyndaiðnaðurinn er viðkvæm atvinnugrein og fjármögnun í þeim geira lýtur um margt sérstökum lögmálum. Styrkir úr Kvikmyndasjóði eru gjarnan forsenda fyrir frekari fjármögnun erlendis frá og þannig margfaldast hver króna sem Kvikmyndasjóður leggur í verkefnið.

Iðnaðarráðherra hefur lagt fyrir Alþingi lagafrumvarp sem kveður á um að 20% endurgreiðslukerfið af framleiðslukostnaði  verði fest í sessi næstu fimm árin og leggjum við allt kapp á að þingið afgreiði það fyrir jól. Reynslan sannar að það skilar miklum umsvifum og þar með tekjum.

Það er dýrt að vera fátækur og það er forsenda fyrir frekari vexti íslenskrar kvikmyndagerðar að stjórnvöld búi til hagfelld skilyrði fyrir kvikmyndagerð og standi vörð um öflugan Kvikmyndasjóð. Og höfum það hugfast að rökin eru bæði mjúk og grjóthörð – menningarleg og fjárhagsleg.

Katrín Jakobsdóttir

Katrín Júlíusdóttir

Höfundar eru mennta- og menningarmálaráðherra og iðnaðarráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum