Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Samningur gerður við Háskólann á Bifröst

Mennta- og menningarmálaráðuneyti og Háskólinn á Bifröst hafa gert þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.

Bifröst
Bifröst

Þann 27. janúar sl. skrifuðu Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, undir þjónustusamning um kennslu og rannsóknir við skólann til næstu fimm ára.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur undanfarna mánuði unnið að gerð nýrra samninga fyrir háskólastigið í heild sinni, í nánu samstarfi við háskólana. Samningurinn við Háskólann á Bifröst er annar í röðinni en þegar hefur verið skrifað undir samning við Háskólann í Reykjavík og samningur við Listaháskóla Íslands er í lokavinnslu. Þá er röðin komin að opinberu háskólunum og er samningaferli hafið við Landbúnaðarháskóla Íslands og Hólaskóla - Háskólann á Hólum. Stefnt er að því að ljúka samningagerð við alla háskólana fyrir vorið.

Sú nýbreytni er nú höfð að leiðarljósi við gerð þjónustusamninga fyrir háskólastigið að hverjum samningi fylgir viðauki, þar sem starfsemi skólanna er skilgreind nánar. Viðaukinn er afrakstur náins samstarfs ráðuneytis og skólanna. Skilgreindir hafa verið ákveðnir samstarfsferlar á milli viðkomandi skóla og ráðuneytis og verður viðaukinn til endurskoðunar ár hvert.

Markmiðið með hinu nýja samningaferli er að auka gagnsæi og eftirlit með rekstri skólanna ásamt því að regluleg endurskoðun viðauka samningsins gerir skólanum og ráðuneyti kleift að bregðast jafnóðum við þjóðfélagsbreytingum og sníða rekstur skólanna og háskólastigins í landinu að þörfum þjóðfélagsins á hverjum tíma.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum