Hoppa yfir valmynd
9. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Íslensk bókmenntasýning í Brussel

Sýningin Sögueyjan Ísland - Portrett af íslenskum samtímahöfundum á ferð um Evrópu í kjölfar bókasýningarinnar í Frankfurt

Íslensk bókmenntasýning í Brussel
Íslensk bókmenntasýning í Brussel

Sýningin Sögueyjan Ísland - Portrett af íslenskum samtímahöfundum opnaði í húsakynnum framkvæmdastjórnar ESB í Brussel í dag, nánar tiltekið í Madou turninum. Þar starfa um 300 starfsmenn framkvæmdastjórnarinnar aðallega á sviði mennta-, menningar- og æskulýðsmála.

Sýningin er hönnuð af Matthias Wagner K. Um er að ræða veggspjöld með portrettljósmyndum Kristins Ingvarssonar ljósmyndara af á þriðja tug íslenskra rithöfunda og viðtöl Péturs Blöndal blaðamanns við þá um hvað í íslenskum söguarfi hafi helst haft áhrif á listsköpun þeirra. Sýningin hefur verið þýdd á fimm tungumál og er notuð við kynningu sendiráða og bókmenntastofnana víða um heim.

Þórir Ibsen, sendiherra Íslands gagnvart ESB og Jan Truszczynski, framkvæmdastjóri stjórnarsviðs mennta- og menningarmála, opnuðu sýninguna formlega. Á opnuninni var jafnframt sýnd ný heimildarmynd eftir Helgu Brekkan, Iceland's Artists and Sagas. Auk þess lágu frammi á annan tug íslenskra bóka sem þýddar hafa verið á ensku, þýsku og frönsku, frammi. Björk Óskarsdóttir, fiðluleikari, spilaði tvö íslensk sönglög eftir Sigfús Halldórsson og Atla Heimi Sveinsson.

Ísland sem bókaþjóð hefur verið áberandi í Evrópu undanfarna mánuði í kjölfar heiðursþátttöku Íslands á stærstu bókasýningu heims, Frankfurter Buchmesse í október sl. en framkvæmdastjórn ESB var einn styrktaraðili sýningarinnar. Í ágúst sl. var Reykjavíkurborg útnefnd bókmenntaborg UNESCO. Bókmenntakynningin er liður í viðleitni sendiráðs Íslands í Brussel  til að efla áhuga fyrir Íslandi og íslenskri menningu í Belgíu, sem og í umdæmisríkjunum Hollandi og Lúxemborg. Í síðustu viku var sýningin í Evrópuþinginu og á næstu misserum verður hún sett upp í fleiri stofnunum Evrópusambandsins og í menningarstofnunum í Benelúxlöndunum.Íslensk bókmenntasýning í Brussel

Íslensk bókmenntasýning í BrusselÍslensk bókmenntasýning í Brussel

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum