Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Fundur samstarfsráðherra Norðurlanda

Katrín Jakobsdóttir tók þátt í fundi samstarfsráðherra Norðurlanda, sem haldinn var í Osló.
Fundur samstarfsráðherra Norðurlanda
Fundur samstarfsráðherra Norðurlanda
Katrín Jakobsdóttir, sem gegnir embætti samstarfsráðherra Norðurlanda, sat í vikunni fund í Osló þar sem meðal annars ræddar voru fjárlagatillögur norrænu ráðherranefndarinnar, næstu skref í vinnu gegn landamærahindrunum á Norðurlöndunum og stefnumótun norrænu ráðherranefndarinnar um grænan vöxt. Þá var haldið opið málþing með þátttöku samstarfsráðherranna um framtíð norræna velferðarsamfélagsins og þær áskoranir sem Norðurlöndin standa frammi fyrir í þeim efnum.
Gangvirki velferðarsamfélagsins er eitt af lykilatriðunum í formennskuáætlun Noregs sem fer nú með  formennsku í norrænu ráðherranefndinni. Gestgjafi fundarins var Rigmor Aasrud, samstarfsráðherra Noregs.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum