Hoppa yfir valmynd
13. mars 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Heimsókn í Iðnskólann í Hafnarfirði

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Iðnskólann í Hafnarfirði og opnaði vorsýningu skólans.
ráherra heimsækir Iðnskólann í Hafnarfirði
ráherra heimsækir Iðnskólann í Hafnarfirði

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Iðnskólann í Hafnarfirði nýlega og opnaði vorsýningu skólans, sem nú er haldin í anddyri IKEA í Garðabæ. Samstarf skólans og verslunarinnar hófst í byrjun árs 2011 þegar IKEA tók á móti kennurum og nemendum , sem voru að ljúka námi í útstillingum. Samstarfið heldur áfram með vorsýningum skólans, sem stendur allan marsmánuð en með mismunandi efni. Þá stendur yfir samþættingarverkefni milli nemenda á mismunandi brautum skólans og fá þeir efni frá IKEA til að vinna með og sýna afraksturinn þar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum