Hoppa yfir valmynd
22. mars 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Landbúnaðarháskólann

Ríkisendurskoðun hefur birt niðurstöður sinar á athugun á rekstri og starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands í skýrslunni „Fjármálastjórn Landbúnaðarháskólans“
LBÍ
LBÍ

Ríkisendurskoðun birti í gær niðurstöður sinar á athugun á rekstri og starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands í skýrslunni „Fjármálastjórn landbúnaðarháskólans“, sjá vef Ríkisendurskoðunar. 

Mennta- og menningarmálaráðuneyti gerir ekki athugasemdir við skýrsluna en getur þó ekki  tekið undir þá túlkun á svörum skólans og ráðuneytisins, sem fram kemur í samantekt á heimasíðu Ríkisendurskoðunar, svo hljóðandi:  „Í skýrslunni kemur fram að á undanförnum árum hefur nemendum og námsbrautum við Landbúnaðarháskólann fjölgað verulega.

Stjórnendur og mennta- og menningarmálaráðuneytið telja að fjárhagsvanda skólans megi fyrst og fremst rekja til þess að framlög ríkisins hafa ekki haldið í við þessa þróun. Frá árinu 2009 hefur eftirlit með fjármálum skólans verið hert en stjórnendum hefur engu að síður ekki tekist að láta enda ná saman í rekstrinum.“  Að mati ráðuneytisins hefur á undanförnum árum orðið mikilvægur viðsnúningur í rekstri skólans en honum fylgdi fjárhagsvandi allt frá sameiningu stofnana, sem síðar urðu að Landbúnaðarháskóla Íslands og frá flutningi á málefnum skólans milli ráðuneyta árið 2008.

Ráðuneytið hefur ásamt stjórn og forsvarsmönnum skólans unnið að því að finna rekstrinum eðlilegan rekstarfarveg og telur að það muni takast á fáum árum. Að öðru leyti er vísað til viðbragða ráðuneytisins í skýrslunni.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum