Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Ný þjónusta

Fréttir frá stofnunum mennta- og menningarmálaráðuneytis aðgengilegar á vefsíðu þess.

Nú er hægt að sjá hvað er efst á baugi í nokkrum stofnunum, sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneytið, á heimasíðu þess. Notuð er svokölluð RSS tækni til að streyma fréttunum og þær uppfærast því sjálfkrafa. Líftími þeirra ræðst af því hve margar berast á hverjum degi. Öllum stofnunum ráðuneytisins, nema framhaldsskólunum, var að þessu sinni boðið að taka þátt í þessu verkefni. Aðeins hluti stofnananna er með RSS streymi á heimasíðum sínum, en vonir standa til þess að þeim fjölgi og fleiri vilji notfæra sér þetta.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum