Hoppa yfir valmynd
24. apríl 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Gyrðir Elíasson hlaut Íslensku þýðingaverðlaunin 2012

Katrín Jakobsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra afhenti Gyrði Elíassyni Íslensku þýðingaverðlaunin 2012, fyrir bókina Tunglið braust inn í húsið.

Kristján Kristjánsson, útgefandi, Gyrðir Elíasson, skáld og þýðandi og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Kristján Kristjánsson, útgefandi, Gyrðir Elíasson, skáld og þýðandi og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Katrín Jakobsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra afhenti Gyrði Elíassyni Íslensku þýðingaverðlaunin 2012, sem Bandalag þýðenda og túlka veitir, fyrir bókina Tunglið braust inn í húsið, sem bókaútgáfan Uppheimar gaf út.  Um verðlaunaverkið segir m.a. í umsögn dómnefndar:

„Með því að velja þessa bók: Tunglið braust inn í húsið  viljum við verðlauna ljóðlist heimsins, gömul ljóð og nýrri - og það að þeim hafi nú verið beint inn í húsið okkar - okkur gefið tækifæri til að lifa með þeim og njóta. Þýðingar Gyrðis á ljóðum ýmissa höfunda frá mörgum löndum og ólíkum tímum eru mikill hvalreki í sjálfu sér, en þarna opnast jafnframt nýjar víddir. Hér er á ferðinni mjög persónulegur lestur þýðandans sem aflar sér fanga og fer vítt. Hér sýnir sig líka ný sköpunarleið sem skáldið fetar. Verkið er samsett úr mörgum gjörólíkum þáttum - og það sem sameinar þessa þætti er tungutak skálds á Íslandi.

Með þessu þýðingarþrekvirki  bætir Gyrðir enn einu blómstrinu í sinn verkasveig þar sem þýðingar skipa veigamikinn sess. Líklega hefur enginn íslenskur rithöfundur verið jafnafkastamikill í þýðingum og Gyrðir. Skyldi það hafa eflt skáldskap hans? Örugglega hefur það gefið okkur lesendum fjölbreyttari flóru bókmennta á góðri íslensku. Fyrst og fremst er bókin Tunglið braust inn í húsið aðgengileg ljóðabók, fallegir textar með frumlegu íslensku orðfæri, nýjum myndum sem opna nýja sýn og skerpa hugsun. Hér býður einn okkar fremstu rithöfunda íslenskum ljóðaunnendum til samsætis með 36 skáldsystkinum frá fimmtán löndum. Þetta er eiguleg bók og falleg og hún ætti alls staðar að vera uppi við..." Í dómnefnd voru Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, formaður, Jórunn Sigurðardóttir og Ólöf Pétursdóttir.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum