Hoppa yfir valmynd
27. apríl 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum að hefjast

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu í dag samning til þriggja ára um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.
Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum að hefjast
Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum að hefjast

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra undirrituðu í dag samning til þriggja ára um vitundarvakningu um kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.Undirritunin fór fram við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík.

Halla Gunnarsdóttir, formaður verkefnisstjórnar og aðstoðarmaður innanríkisráðherra, kynnti samninginn í upphafi athafnarinnar og síðan sögðu ráðherrarnir nokkur orð. Börn af Ægisborg sungu nokkur lög og í lokin undirrituðu ráðherrarnir samninginn.

Samningurinn er í samræmi við sáttmála Evrópuráðsins um varnir gegn kynferðislegri misnotkun og kynferðislegri misneytingu gegn börnum en Ísland hefur verið aðili að samningnum síðan í febrúar 2008. Fullgilding sáttmálans stendur nú yfir en hluti hans kveður á um að beina fræðslu um kynferðislegt ofbeldi að börnum og fólki sem á samskipti við börn í starfi sínu.

Að tillögu ríkisstjórnar samþykkti Alþingi 25 milljón króna fjárveitingu til verkefnisins á þessu ári og í samningnum er gert ráð fyrir að verja 16 milljónum króna á ári næstu tvö árin til vitundarvakningarinnar með fyrirvara um samþykki Alþingis. Að því loknu verður árangur verkefnisins metinn og framhaldið ákveðið.

Vitundarvakning um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum að hefjast



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum