Hoppa yfir valmynd
13. júní 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Katrín Jakobsdóttir heiðruð af JCI

JCI á Íslandi veitti verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar í 11. sinn til fjögurra einstaklinga.
jci verðlaun
jci verðlaun

Verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar, sem veitt eru árlega af JCI  á Íslandi, eru hvatningarverðlaun til ungs fólks á aldrinum 18 til 40 ára, sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni.  Í tilkynningu frá JCI kemur fram að verðlaunin séu hvatning og viðurkenning fyrir ungt fólk sem stefnir hátt og búast megi við að hafi áhrif í samfélaginu í framtíðinni.  Auk þess vill JCI með verðlaununum beina athyglinni að því jákvæða, sem er að gerast í samfélaginu.  Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hlaut verðlaunin fyrir störf sín á sviði stjórnmála og aðrir verðlaunahafar voru Gunnar Nelson, íþróttamaður, Halldór Helgason, snjóbrettakappi og Leifur Leifsson, baráttumaður hreyfihamlaðra.

JCI (Junior Chamber International) er alþjóðlegur félagsskapur ungs fólk á aldrinum 18-40 ára sem vill efla hæfileika sína og félagslega færni og sjá jákvæðar breytingar í umhverfi sínu.  Samtökin starfa í yfir 100 löndum og eru með yfir 200 þúsund meðlimi á heimsvísu.

Um verðlaunahafana segir m.a. í tilkynningu frá JCI:

  • Gunnar Lúðvík Haraldsson Nelson fæddist 28. júlí 1988.  Hann er í efsta sæti á heimslista íþróttavefjarins MMA Planet yfir efnilegustu íþróttamenn í blönduðum bardagaíþróttum. Gunnar er margfaldur Íslandsmeistari unglinga í karate (frjálsum bardaga) og hefur unnið til fjölda verðlauna í því, auk annarra bardagaíþrótta.
  • Halldór Helgason fæddist 10. janúar 1991. Hann er ungur og efnilegur snjóbrettakappi, sem hefur gengið vel í erlendum keppnum. Árið 2010 vann hann t.d. gullverðlaun í Big Air á Vetrar X leikunum og er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur til verðlauna á þeim.  Halldór hefur ásamt bróður sínum byggt upp fjögur fyrirtæki í kringum íþróttaiðkunina. 
  • Katrín Jakobsdóttir fæddist 1. febrúar 1976.  Hún hefur verið í mörg ár leiðandi í íslenskum stjórnmálum þrátt fyrir ungan aldur. Hún er varaformaður eins af stærri stjórnmálaflokkunum á Íslandi og hefur gegnt embætti mennta- og menningarmálaráðherra undanfarin ár.
  • Leifur Leifsson fæddist 22. september 1984.  Hann hefur starfað mikið að hagsmunamálum fatlaðra og forsprakki í margvíslegum verkefnum, sem ætlað er að vekja athygli á því að fatlað fólk getur gert ýmislegt til jafns við ófatlaða, m.a. að fara upp á jökul á sérknúnum hjólastól, sem var knúinn með handafli.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum